Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 105 Reykjavík

Laugavegur 168A

72.900.000 kr.

1.330 þ.kr./m²

25 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
54,8 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2025
Hæð
5. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
62.800.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
63.700.000 kr.
Brunabótamat
48.750.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala og Jason Ólafsson fasteignasli kynnir: íbúð 502 er með sérmerktu stæði í bílageymslu. 2ja herbergja íbúð. Laus strax. Íbúð með útsýni. Í húsinu eru glæsilegar íbúðir í fjölbreyttum stærðum við Heklureit þar sem áhersla er lög á nútímalega hönnun með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og nýjustu Siemens tækjum. Gólfsíðir gluggar hleypa mikilli náttúrulegri birtu inn og auka útsýni. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Íbúðir á efri hæðum hafa eigin þakgarða en sameiginlegur þakgarður verður einnig fyrir alla íbúa í húsinu ásamt fallegum inngarði. Frábær staðsetning í miðborginni en þó fjarri skarkala miðbæjarins.

Íbúð 502 er 2ja herbergja íbúð á 5. hæð, með öllum þægindum sem hægt er að hugsa sér. Samtals 54,8 fermetrar. Svalir til vesturs og skiptist íbúðin í svefnherbergi, stofu, eldhúsi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Gólfhiti er í íbúðinni. Íbúðinni er skilað með harðparketi. Sérgeymsla fylgir að stærðinni 8,3 fm, merkt 082. Og stæði í bílageymslu fylgir með. 

Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. 
Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga. 
Örstutt í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut. 

Bókið skoðun hjá sérfræðingum um eignina:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 / jason@betristofan.is
Þórhallur Biering Guðjónsson, í síma 896-8232 / thorhallur@betristofan.is

 

Staðsetning

Laugavegur 168A, 105 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin