Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 105 Reykjavík

Laugavegur 170 603

138.900.000 kr.

1.151 þ.kr./m²

18 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
Stærð
120,7 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2025
Hæð
6. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
77.100.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan og Jason Kristinn fasteignasali sími 775 1515 og jason@betristofan.is kynnir: Heklureitur - Laugavegur 170 - 120,7 fm íbúð 603 sem er á norðvestur horni hússins með stæði í bílageymslu mekrt B14. Möguleiki er að bæta við herbergi og þá yrði hún 4ra herbergja. Tvö baðherbergi eru í eigninni. Frábært útsýni. 

Glæsileg 3ja-4ra herbergja útsýnisíbúð á 6. hæð með gæða ítölskum sérsmíðuðum innréttingum og nýjustu Siemens tækjum. Gólfhiti er í íbúðinni og eru flestir gluggar gólfsíðir. Eignin skiptist í anddyri með fataskápum, baðherbergi með sturtu og þvottaaðstoðu. Svefnherbergi að stærðinni 7,2 fm með glugga til austurs. Hjónsvítan er rúmlega 20 fm að stærð með fataherbergi og sér baðherbegi með sturtu. Gluggar á baðherbergi innan svefnherbergis, sem og aðalsvefnherbergið snúa til vesturs. Aðalrýmið skiptist í stofu, eldhús og sjónvarpsstofu. Glæsilegar innréttingar, eldhús með eyju. Siemens tæki af vandaðri gerðinni. Gluggar til norðurs og austurs. Stofan er með útgengi út á norð/vestursvalir með svalalokun og útsýni er til fjalla. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni og sérgeymsla að stærðinni  11,9 fm, merkt -008 

Heimasíða

Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. 
Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga. 
Örstutt í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut. 
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af væntanlegu brunabótamati

Bókið skoðun hjá sérfræðingum um eignina:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 / jason@betristofan.is

Þórhallur Biering Guðjónsson, í síma 896-8232 / thorhallur@betristofan.is

Staðsetning

Laugavegur 170 603, 105 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin