Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 105 Reykjavík

Borgartún 24A (310)

62.900.000 kr.

1.178 þ.kr./m²

17 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
53,4 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2024
Hæð
3. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
58.050.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
57.950.000 kr.
Brunabótamat
37.450.000 kr.
Laus
Strax

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is kynnir: SÝNUM DAGLEGA BORGARTÚN 24
Glæsilegar nýjar íbúðir í vel staðsettu fjölbýlishúsi í Borgartúni í Reykjavík. Íbúðir afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum, innbyggðum eldhústækjum og gólfefnum.  Sameiginlegar þaksvalir í suður, austur og norður

Heimasíða

Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 310 í Borgartúni 24a, íbúð merkt 01-0310, F2518356. 2ja herbergja íbúð með svölum sem snúa til vesturs. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 53,4 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu í alrými, opið svefnrými, baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sérgeymsla fylgir íbúðinni sem er 7,7 fm. Svalir snúa í vestur. 

Borgartún 24 er glæsilegt 7 hæða fjölbýlishús með 64 íbúðum á 2.-7 hæð og verslunar- og þjónusturýmum á 1. hæð í einu helsta viðskiptahverfi borgarinnar. Í Borgartúni er blönduð byggð íbúða, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við stóra vinnustaði og alla helstu þjónustu, í göngufæri frá miðbænum og Laugardalnum. Byggingin er byggð utan um sameiginlegan inngarð. Á 4. hæð er einnig sameiginlegur þakgarður, á 6. hæð er sameiginlegur þakgarður og á 7. hæð eru sameiginlegar þaksvalir.
 
Frágangur íbúða að innan: Vandaðar þýskar innréttingar frá Nobilia í eldhúsi, baði og herbergjum (söluaðili er GKS). Íbúðirnar afhendast fullbúnar með tækjum og gólfefnum. Eldhúsraftæki koma frá Siemens, ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Harðparket á gólfum herbergja og í alrými. Gólf á baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð. Hreinlætistæki frá Grohe.  
Frágangur utanhúss: Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með viðhaldsléttri álklæðningu eða sambærilegu efni. Timbur/ál gluggar. Lóð og bílastæði: Sameiginlegur inngarður er á 2. hæð og sameiginlegar þaksvalir eru á 4. hæð. Í bílakjallara eru 39 bílastæði, þar af 4 fyrir hreyfihamlaða, og 30 bílastæði eru á lóð. Bílastæði fyrir hreyfihamlaða er einnig á plani við aðalinngang.
Hiti og rafmagn: Hiti er sameiginlegur og reiknast samkvæmt hlutfallstölu en rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð. 
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati.

Bókið skoðun: 
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali. - netfang: jason@betristofan.is
Hörður Sverrisson, sími 899-5209, lgf, hordur@betristofan.is

Staðsetning

Borgartún 24A (310), 105 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin