Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 221 Hafnarfjörður

Kríuás 45

69.800.000 kr.

827 þ.kr./m²

29 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með sérinngangi
Stærð
84,4 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2001
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
62.700.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
64.750.000 kr.
Brunabótamat
49.150.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir nýtt í einkasölu: Rúmgóða og fallega 2ja-3ja herbergja endaíbúð á jarðhæð með sér inngang og tveimur afgirtum veröndum. Gott aðgengi. Eignin telur: Opið og bjart alrými sem telur stofu, borðstofu og eldhús, hjónaherbergi, auka herbergi / geymsla með loftræstingu en gluggalaust, baðherbergi, anddyri, sér þvottahús og sameiginleg góð geymsla.

Nánari lýsing:

Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Stofa og borðstofa mynda saman fallegt rými, parket á gólfi og útgengt á verönd framan við húsið.
Eldhúsið er opið við stofuna, þar er fín innrétting með veggfastri eyju, parket á gólfi og útgengt á verönd (frábær grillaðstaða)
Hjónaherbergi rúmgott með stórum fataskápum, parket á gólfi.
Auka herbergi, parket á gólfi, loftræst rými en án glugga. Nýtist sem gestaherbergi en er skráð geymsla.
Baðherbergi er flísalagt með snyrtilegri innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu, gluggi er á rýminu.
Þvottahús er sér innan íbúðar með flísum á gólfi.
Sameign er snyrtileg, þar er stór sameiginleg geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Bílastæði er merkt framan við húsið (ekki skilgreint í eignaskiptasamn).
Hverfið er eftirsótt fjölskylduhverfi, göngufæri í skóla, grunnskóla, sund og íþróttaaðstöðu að Ásvöllum.
Hleðslustöð til afnota fyrir eigendur á sameiginlegu bílaplani.

Þetta er björt og falleg eign með góðu aðgengi sem vert er að skoða. Eignin getur verið laus fljótlega. 
Allar nánari upplýsingar veitir: Atli S. Sigvarðsson löggiltur fasteignasali í síma 899-1178 eða með tölvupósti á atli@betristofan.is 

 

Staðsetning

Kríuás 45, 221 Hafnarfjörður

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin