Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Raðhús· 108 Reykjavík

Furugerði 33

129.000.000 kr.

954 þ.kr./m²

58 myndir

Tegund
Raðhús á tveimur hæðum
Stærð
135,2 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
2023
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
104.650.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
106.150.000 kr.
Brunabótamat
99.750.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna: Furugerði 33, nýlegt og glæsilegt 5 herbergja raðhús með tveimur baðherbergjum og sér þvottahúsi í 108 Reykjavík. Furugerði 33 er annað hús vestanmegin, skráð stærð 135,2 m², þar af er stærð íbúðar 125,7 m² og sérgeymsla í bílakjallara er 9,5 m².  Bílastæði í bílakjallara fylgir.

Nánari lýsing; 
Gengið er inn um aðalinngang norðanmegin við húsið, þar sem er baðherbergi með sturtu og sér þvottahús.
Úr anddyri er komið inn í hol / alrými þar sem stigi bindur saman hæðir. 
Eldhús, stofa og borðstofa eru í sameiginlegu opnu rými. Stórir gólfsíðir gluggar veita birtu inn í stofu og borðstofu. 
Sérafnotaréttur: Gengið úr stofu út á afgirtan pall sem snýr til suðurs.
Gengið upp teppalagðan stiga uppá aðra hæð sem er með aukinni lofthæð.
Á annarri hæð eru fjögur svefnherbergi ásamt baðherbergi með baðkari. Pergo harðparket frá Agli Árnasyni.
Aðalsvefnherbergi er með góðu skápaplássi og útgengt út á svalir.

Í bílakjallara er sér stæði með hleðslustöð fyrir rafmagnsbil. 

Allar innréttingar eru í ljósum furulit frá Voke3. Í eldhúsi eru borðplötur úr kvartzsteini í ljósum lit frá Technistone. Í eldhúsi eru vönduð innbyggð eldhústæki og spanhelluborð.  Gólfhiti er á neðri hæð en á efri hæð er hefðbundið ofnakerfi. Útveggir og hluti innveggja innan íbúða eru úr krosslímdum timbureiningum og verður yfirborð þeirra annarsvegar sýnilegt CLT og hins vegar gifsklætt og málað.
 
Húsið eru loftæst með sjálfstæðu loftskiptakerfi. Kerfið blæs inn fersku lofti í íverurými og dregur út loft frá baðherbergjum, þvottahúsi og eldhúsi. Varmi úr útsoginu er fluttur yfir í ferska loftið með varmaendurvinnslu án þess að blanda loftinu saman. Gluggar eru ál-timbur gluggar frá danska framleiðandanum Ideal-Combi, Gler er tvöfalt k-einangrunargler og sérstaklega hljóðeinangraðir þar sem við á.
 
Efnisval er með umhverfisáhrif í huga og uppbygging á húsunum miðast við að notuð séu efni sem þurfa lítið viðhald.  Krosslímdar timbureiningar í burðarvirki húsanna eru einangraðar að utan og klædd veðurþolinni, viðhalds lítilli klæðningu. Hljóðvist innandyra er góð.
 
Undir húsunum er staðsteyptur kjallari með geymslum og bílastæðum.
Sér bílastæði í bílakjallaranum fylgir öllum raðhúsunum auk sameiginlegri hjóla/vagnageymslu.  Gott aðgengi er fyrir gangandi og hjólandi umferð að lóðinni frá austur- og vesturenda.

Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.

Staðsetning

Furugerði 33, 108 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin