Fjölbýli· 210 Garðabær
Mávanes 9
Tilboð
12 myndir
- Tegund
- Fjölbýli
- Stærð
- 316,4 m²
- Herbergi
- 7
- Svefnherbergi
- 5
- Baðherbergi
- 3
- Byggingarár
- 1964
- Hæð
- 1. hæð
- Inngangur
- Tveir inngangar
- Fasteignamat
- 283.400.000 kr.
- Fasteignamat næsta árs
- 292.900.000 kr.
- Brunabótamat
- 154.850.000 kr.
- Laus
- Strax
Um eignina
Betri Stofan og Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali (s. 775-1515 / jason@betristofan.is), kynna: Mávanes 9, 210 Garðabæ – Frumbyggjar selja einstaklega vel staðsett einbýlishús með glæsilegum arkitektúr á fallegri sjávarlóð sunnan megin á Arnarnesinu.
Um er að ræða upprunalegt 316,4 m² einbýlishús sem teiknað var af Helga Hjálmarssyni arkitekt. Húsið stendur á 1.400 m² suðvesturlóð alveg við sjóinn sem tryggir ómótstæðilegt og óhindrað útsýni. Húsið var reist árið 1970 og hefur verið í eigu sömu aðila frá upphafi.
Skipting eignarinnar:
NÁNARI LÝSING:
Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að eignast vel hannað arkitektaheimili á einum eftirsóttasta stað landsins. Staðsetningin við sjávarlóð á Arnarnesi gerist ekki mikið betri.
Nánari upplýsingar veita Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 / jason@betristofan.is / löggiltur fasteignasali
Um er að ræða upprunalegt 316,4 m² einbýlishús sem teiknað var af Helga Hjálmarssyni arkitekt. Húsið stendur á 1.400 m² suðvesturlóð alveg við sjóinn sem tryggir ómótstæðilegt og óhindrað útsýni. Húsið var reist árið 1970 og hefur verið í eigu sömu aðila frá upphafi.
Skipting eignarinnar:
- Aðalhæð: 211,9 m²
- Bílskúr: 62,8 m²
- Bátaskýli / geymsla: 41,7 m²
- Samtals: 316,4 m²
- Lóðarstærð: 1.400 m²
- Verð: Tilboð
NÁNARI LÝSING:
- Anddyri og alrými:
- Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu.
- Gestasnyrting: Snyrtileg og flísalögð gestasnyrting staðsett við anddyrið.
- Skrifstofa/Svefnherbergi: Rúmgott herbergi sem nýtist vel sem skrifstofa eða svefnherbergi. Fallegur gluggi í herberginu með sjávarútsýni.
- Stofa: Björt og afar rúmgóð stofa með arni og glæsilegu útsýni yfir hafið. Úr stofu er vönduð rennihurð út á pall með útiarni og þaðan áfram út í garð.
- Borðstofa: Opin og falleg borðstofa. Rýmið er einstaklega bjart með gluggum til norðurs og stórum gluggum sem snúa mót suðri með sjávarútsýni.
- Eldhús: Sérsmíðuð eldhúsinnrétting og parket á gólfi.
- Sjónvarpsstofa: Gengið er niður þrjár tröppur á neðri pall þar sem sjónvarpsstofan er staðsett. Frá efri palli er gengið út á skjólsælan pall til suðurs með útiarni.
- Auka anddyri & þvottahús: Sér þvottahús er staðsett á milli eldhúss og auka anddyris.
- Gangurinn er teppalagður og leiðir inn í svefnálmu hússins.
- Baðherbergi: Staðsett í álmunni, með sturtu.
- Svefnherbergi: Fjögur svefnherbergi eru í álmunni.
- Hjónaherbergi: Sérlega rúmgott með fataherbergi og sérbaðherbergi innaf sem er útbúið baðkari.
- Bílskúr: Skráður 62,8 m². Rúmgóður með tveimur innbyggðum geymslum. Hleðslupláss og gott athafnasvæði.
- Bátaskýli/Geymsla: 41,7 m² rými á neðri hæð sem snýr til suðurs út í garðinn. Rýmið er með bæði hefðbundinni hurð og bílskúrshurð. Þetta rými býður upp á mikla möguleika og gæti nýst sem bátaskýli, vinnustofa, geymsla eða jafnvel auka svefnherbergi.
- Lóðin: 1.400 m² stóreignarlóð sem snýr til suðvesturs alveg niður að sjó. Einstök staðsetning á Arnarnesinu.
- Bílastæði: Gott hellulagt plan með stæði fyrir 3 bíla.
- Þak: Upprunalegt þak sem hefur fengið reglulegt og gott viðhald ásamt eftirliti undanfarin ár.
Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að eignast vel hannað arkitektaheimili á einum eftirsóttasta stað landsins. Staðsetningin við sjávarlóð á Arnarnesi gerist ekki mikið betri.
Nánari upplýsingar veita Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 / jason@betristofan.is / löggiltur fasteignasali
Staðsetning
Mávanes 9, 210 Garðabær



