Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 108 Reykjavík

Orkureiturinn D1 212

155.000.000 kr.

998 þ.kr./m²

13 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
155,3 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Byggingarár
2025
Hæð
2. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
104.750.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn s. 7751515 á Betri Stofunni og Safír byggingar ehf kynna með stolti Orkureitinn. Glæsilegar nýjar íbúðir í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna. Rut Kára stýrir innanhússhönnun og er sérstök áhersla lögð á gott flæði dagsbirtu. Svansvottaðar íbúðir.

Heimasíða Orkureitsins

Orkureitur - Grensásvegur 4, íbúð 212 er 3ja- 4j herbergja 155,3 fm íbúð með 22,3fm geymslu í kjallara og bílastæði í kjallara merkt B039

Flæði íbúðar:
Komið inní anddyri með góðum fataskápum.
Baðherbergi með sturtu. Flísar á gólfi
Hjónasvíta með sér baðherbergi og walk-in fataskápum
Svefnherbergi II er 13,1 fm að innra máli og er með fataskápum.
Eldhúsið er með glæsilegum innréttingum frá GKS með eyju. Safír klassík 4. 
Auðveldlega er hægt að útbúa 3ja svefnherbergið á kostnað sjónvarpshols sem er í enda stofu. Gólfsíðir gluggar og gólfhit ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði. 
Alrýmið er með gluggum til  austurs og vesturs og þaðan er hægt að ganga út á svalir sem eru 8,3 fm að stærð.
Sérgeymsla er 22,3 fm.
Innréttingaþema er Safír Klassík 4. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora. 

Nánar um Orkureitinn: 
Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.

Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027. 

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar:
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is
Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 866-1763 - tölvupóstur: dagrun@betristofan.is

 

Staðsetning

Orkureiturinn D1 212, 108 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin