Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Einbýli· 580 Siglufjörður

Fossvegur 16

Tilboð

29 myndir

Tegund
Einbýli
Stærð
244,8 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Byggingarár
1978
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
59.250.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
65.550.000 kr.
Brunabótamat
112.550.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Fossvegur 16, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0202 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Fossvegur 16 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0202, birt stærð 122.4 fm.
Búið er að skipta upp eigninni í hæðir og því um séríbúðir á hæð að ræða. Unnið er að því að gera eignaskiptayfirlýsingu.  

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.


Um er að ræða einbýlisshús á frábærum stað með miklu útsýni og skjólgóðum suðurpalli. Eigninni hefur verið skipt upp í tvær sjálfstæðar íbúðir því möguleiki á leigutekjum. Möguleiki er á að breyta eigninni aftur í einbýlishús og getur upprunalegur stigi fylgt með í kaupunum. Bílskúr er með aðgang upp á háaloft eignarinnar og er innangengt úr íbúð efri hæðar. 

Efri hæð eignarinnar samanstendur af anddyri, eldhúsi, búri, stofu með útgang út á austur svalir og suðurpall, klósetti, þvottahúsi með sturtuaðstöðu og tveimur svefnherbergjum. Flísar eru fljótandi um efri hæðina með gólfhita. Veggir efri hæðarinnar eru léttir veggir með burði í fjórum stoðsúlum því möguleiki á að breyta skipulagi.

Neðri hæð eignarinnar er hrá en baðherbergi og eldhús hefur verið endurgert. Gólfið hefur verið flotað í heild en er án gólfefna fyrir utan baðherbergi sem er flísalagt með gólfhita. neðri hæðin samanstendur af anddyri, eldhúsi baðherbergi, þremur herbergjum og stóru gluggalausu rými sem möguleiki er á að setja glugga í. 

Búið er að fara í allar vatnslagnir og frárennsli. Gluggar á norðurhlið eru nýlegir en komin tími á lagfæringu á þeim gluggum sem snúa í austur. Ágætis garður er fyrir aftan við eign en timbur pallur framan við inngang og timbur stigi niður með eigninni frá götu. Ljósleiðari hefur verið lagður inn í eignina. 

Efri hæð: 
Anddyri: er flísalegt með ágætis skápum. Salerni er inn af anddyri. 
Eldhús: er með ljósri innréttingu og ágætis borðkrók. Flísar eru á gólfi og frábært útsýni yfir fjörðinn úr eldhúsi. 
Búr: er inn af eldhúsi með góðu hillu plássi. 
Stofa: liggur samfelld með borðstofu og fljótandi flísum á gólfi. Útgangur er út á svalir bæði austan megin og sunnan megin við eignina úr stofu. 
Svefnherbergi: er meðð flísum á gólfi og góðu skápaplássi. Einnig er svefnherbergi inn af eldhúsi. 
Þvottahús: var útbúið þar sem stigaop á neðri hæð var. Með góðu skápaplássi og frístandandi sturtuklefa. 

Neðri hæð:
Anddyri: rúmgott með epoxy á gólfi. Inntak fyrir vatn er á vegg. 
Eldhús: hvítar innréttingar með efri og neðri skápum og grárri borðplötu. Flísar eru á gólfi. 
Svefnherbergi: eru þrjú misstór með góðu gluggarými. 
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu klósetti og hvítri innréttingu. Sturtuklefi er flísalagður með hurð. Hiti er í gólfi. 
Geymsla/herbergi: er mjög rúmgóð með möguleika á að setja glugga í. 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Betri Stofan. - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali í Fjallabyggð
 

Staðsetning

Fossvegur 16, 580 Siglufjörður

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin