Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 105 Reykjavík

Mánatún 15

109.900.000 kr.

913 þ.kr./m²

40 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
120,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2014
Hæð
4. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
100.650.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
101.850.000 kr.
Brunabótamat
74.710.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 netfang: jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna stórglæsilega og vel skipulagða íbúð á fjórðu hæð í lyftuhúsi með stæði í bílakjallara.
Eignin er 120,4 fm. skv. fasteignaská HMS, þar af er sér geymsla 11,5 fm. en auk þess eru yfirbyggðar svalir um 16 fm. sem snúa í n-vestur.  Fallegt útsýni yfir borgina. 


Nánari lýsing; Komið er inn í parketlagða forstofu með skáp. 
Opið alrými með gluggum til vesturs rúmar gott eldhús, borðstofu og setustofu.
Eldhús er með innréttingu með quartz steini og "back-splash" á borðplötu og eyjunni og setur glæsilegan og hlýlegan brag á eldhúsið. Nýlegt span helluborð og háfur, innbyggð uppþvottavél og gott vinnupláss og hirzlur eru í eldhúsinu.
Stofan er rúmgóð með gólfsíðum gluggum meðfram vesturhliðinni, gengið er út á stórar, yfirbyggðar 16 fm svalir sem nýtast árið um kring.
Svefnherbergisálman er vel skipulögð, hálf opið fataherbergi er í holi næst forstofunni. Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð og með skápum.
Baðherbergi er einnig rúmgott, flísalagt með gólfhita, stórum "walk-in" sturtuklefa með glervegg, upphengdu salerni, handklæðaofni og innréttingu með quartz-steini eins og í eldhúsinu. Hiti í gólfum.
Þvottahús er á ganginum, flísalagt með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vaskur og góð aðstaða.

Íbúðin er smekklega innréttuð með dimmanlegri lýsingu og aukinni lofthæð.
Sameign er mjög snyrtileg, þar er mynddyrasími og aðgangsstýring fyrir íbúa. Í kjallara eru geymslur, sérgeymsla þessarar íbúðar er 11,5 fm. en einnig er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Stæði í bílageymslu er vel aðgengilegt, þar er búið að setja upp rafhleðslustöð.
Mánatún 15 er með nægum bílastæðum fyrir íbúa og gesti og fallegu útisvæði.

Þetta er einstaklega smekkleg og vel um gengin íbúð nýjum kjarna við Borgartúnið þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu, veitingastaði og gönguleiðir.

Allar frekari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.

Staðsetning

Mánatún 15, 105 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin