Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 210 Garðabær

Vetrarbraut 2 (110)

74.670.000 kr.

950 þ.kr./m²

19 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
78,6 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2025
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
66.900.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
72.600.000 kr.
Brunabótamat
58.900.000 kr.
Laus
Strax

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala kynnir: Glæsilegar nýjar íbúðir við Vetrarbraut 2-4, í nýju og heillandi hverfi við golfvöll GKG í Garðabæ.
Íbúð 110 er 78,6 fermetra fjögurra herberegja íbúð á fyrstu hæð. Steinn á borðplötum eldhúsa og loftskiptikerfi í íbúð. Eigninni fylgir bílastæði B64 í lokaðri bílageymslu.  Góður sérafnotareitur.

www.vetrarbraut.is


Nánari lýsing:
Eignin skiptist í hol, eldhús, borðstofu og stofu í rúmgóðu og björtu alrými þaðan sem gengið er út á sérafnotareit, svefnherbergi með góðum fataskápum, baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Í sameign er hjóla og vagnageymsla ásamt 8,6 fm. sér geymslu íbúðar. Bílastæði nr. B64, sérmerkt í lokaðri bílageymslu. 
Eldhús er vel útbúið, sérsmíðaðar Voke III innréttingar, á borðplötum er kvarts steinn. Vönduð tæki eru í eldhúsi, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. ofn í vinnuhæð. eldhús- og blöndunartæki að vandaðri gerð.
Íbúðin skilast án gólfefna utan baðherbergja og þvottahús sem skilast flísalögð.

Rými eru hönnuð með áherslu á loftgæði, hljóðvist og náttúrulega birtu. Hver íbúð hefur loftskiptikerfi sem stjórnað er innan íbúðar, slíkt eykur loftgæði og stuðlar að heilnæmu innilofti.
Húsið er klætt flísum og álkæðningu, slétt og bára. klæðningar eru í mismunandi litum, náttúrulegum jarðlitum sem tengir bygginguna umhverfinu, lögð er áhersla á að húsin séu viðhaldslétt, flísar og álklæðningar og ál/tré gluggar.

Um er að ræða bjartar og fallegar íbúðir í vandaðri nýbyggingu í einstöku umhverfi, nálægð við Golfvöll GKG, útivistarsvæði Heiðmerkur, nýja íþróttaaðstöðu Stjörnunnar svo fátt sé upptalið í skemmtilegu nýju hverfi.
Með öllum íbúðum fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu í það minnsta eitt fyrir hverja íbúð og fylgja bílskúrar sumum íbúðum að auki.  
Vandað hefur verið að allri hönnun innan sem utan.
Byggingar eru hannaðar af Arkís, aðalhönnuður er Arnar Þór Jónsson arkitekt og hafði Thelma Guðmundsdóttir innanhúsarkitekt umsjón með innanhúshönnun. Hverfið í  heild, Vetrarmýri, er hannað af Sigurði Einarssyni arkitekt og skipulagshönnuði hjá Batteríinu.

Ljósmyndir eru úr sýningaríbúð Vetrarbraut 4 íbúð 215 og eru ætlaðar til glöggvunar á hönnun.

Nánari upplýsingar veita:
Jason Kristinn Ólafsson, í síma 775-1515, tölvupóstur jason@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir, í síma 899-5533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.
Dagrún Davíðsdóttir, í síma 866-1763, tölupóstur dagrun@betristofan.is
Þórhallur Biering Guðjónsson, í síma 896-8232, tölvupóstur thorhallur@betristofan.is

Staðsetning

Vetrarbraut 2 (110), 210 Garðabær

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin