Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 105 Reykjavík

Borgartún 24B (501)

82.900.000 kr.

1.002 þ.kr./m²

21 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
82,7 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2024
Hæð
5. hæð
Inngangur
Sérinngangur af svölum
Lyfta
Já
Fasteignamat
77.050.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
76.850.000 kr.
Brunabótamat
52.550.000 kr.
Laus
Strax

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala BORGARTÚN 30 og Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is kynnir: SÝNUM DAGLEGA BORGARTÚN 24
Glæsilegar nýjar íbúðir í vel staðsettu fjölbýlishúsi í Borgartúni í Reykjavík. Íbúðir afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum, innbyggðum eldhústækjum og gólfefnum. ÍBÚÐ 501 ER 82,7 FM ÍBÚÐ Á 5. HÆÐ  - Í húsinu er golfhermir www.golf24.is - Hárgreiðslustofa og ýmislegt fleira. Frítt er að leggja, 1 stæði á íbúð. 

Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 501 í Borgartúni 24a, íbúð merkt 01-0501, F2518378. 3ja herbergja íbúð og rúmgóðum svölum sem snúa út á Nóatúni, til suðausturs. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 82,7 fM. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu í alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sérgeymsla fylgir íbúðinni sem er 12,5 fm. Svalir snúa í suð-austur eru 11,1 fm og eru ekki taldar með í heildar fermetratölu. 

Borgartún 24 er glæsilegt 7 hæða fjölbýlishús með 64 íbúðum á 2.-7 hæð og verslunar- og þjónusturýmum á 1. hæð í einu helsta viðskiptahverfi borgarinnar. Í Borgartúni er blönduð byggð íbúða, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við stóra vinnustaði og alla helstu þjónustu, í göngufæri frá miðbænum og Laugardalnum. Byggingin er byggð utan um sameiginlegan inngarð. Á 4. hæð er einnig sameiginlegur þakgarður, á 6. hæð er sameiginlegur þakgarður og á 7. hæð eru sameiginlegar þaksvalir.
 
Frágangur íbúða að innan: Vandaðar þýskar innréttingar frá Nobilia í eldhúsi, baði og herbergjum (söluaðili er GKS). Íbúðirnar afhendast fullbúnar með tækjum og gólfefnum. Eldhúsraftæki koma frá Siemens, ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Harðparket á gólfum herbergja og í alrými. Gólf á baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð. Hreinlætistæki frá Grohe.  
Frágangur utanhúss: Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með viðhaldsléttri álklæðningu eða sambærilegu efni. Timbur/ál gluggar. Lóð og bílastæði: Sameiginlegur inngarður er á 2. hæð og sameiginlegar þaksvalir eru á 4. hæð. Í bílakjallara eru 39 bílastæði, þar af 4 fyrir hreyfihamlaða, og 30 bílastæði eru á lóð. Bílastæði fyrir hreyfihamlaða er einnig á plani við aðalinngang.

Hiti og rafmagn: Hiti er sameiginlegur og reiknast samkvæmt hlutfallstölu en rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð. 
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati.

Bókið skoðun: 
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali. - netfang: jason@betristofan.is
Hörður Sverrisson, lgf sími 899-5209, hordur@betristofan.is

Staðsetning

Borgartún 24B (501), 105 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin