Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 108 Reykjavík

Orkureiturinn D1 601

149.800.000 kr.

1.245 þ.kr./m²

42 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
120,3 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2025
Hæð
6. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
90.850.000 kr.

Um eignina

Jason Ólafsson, s. 7751515 á Betri Stofunni og Safír byggingar ehf kynna með stolti Orkureitinn. Glæsilegar nýjar íbúðir í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna. Rut Kára stýrir innanhússhönnun og er sérstök áhersla lögð á gott flæði dagsbirtu. Svansvottaðar íbúðir.

Heimasíða Orkureitsins

Orkureitur - Grensásvegur 2, íbúð 601 er 3ja herbergja 120.3 fm íbúð með sérmerktu stæði B006. Íbúðin er við Suðurlandsbrautar  og er á 6. hæðinni með  útsýni til Laugardals. Bókið skoðun: Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232

Flæði íbúðar:
Komið inní anddyri með fataskápum.
Baðherbergi með sturtu. Rennihurð úr baðherbergi í þvottarými. 
Hjónasvíta með sér baðherbergi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með einföldum fataskáp.
Eldhúsið er með stein á borðplötum. Glæsileg innrétting frá GKS með eyju. Safír Harmónía.
Alrýmið er með gluggum til norðurs og þaðan er hægt að ganga út á svalir sem eru rúmlega 4.6 fm að stærð.   
Gólfsíðir gluggar og gólfhiti ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði. 
Sérgeymsla er 10.5 fm.
Innréttingaþema er Safír Harmónía. Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora. 

Nánar um Orkureitinn: 
Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.

Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027. 

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar: 
Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða thorhallur@betristofan.is   
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is

 

Staðsetning

Orkureiturinn D1 601, 108 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin