Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Tví-/þrí-/fjórbýli· 800 Selfoss

Móstekkur 8

Tilboð

46 myndir

Tegund
Fjórbýli
Stærð
127,2 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2023
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamat
72.600.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
74.500.000 kr.
Brunabótamat
73.950.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson,lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Móstekkur 8, 800 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 252-4327 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Um er að ræða 127,2 fm 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sólpalli í vönduðu fjórbýli frá 2023 við Móstekk 8 á Selfossi. Húsið er staðsteypt, einangrað og klætt að utan með álklæðningu. Hönnun hússins er nútímaleg og fáguð þar sem lögð hefur verið áhersla á gott skipulag, vandaðar innréttingar, tæki og gólfefni og góða notkunarmöguleika.
Að innan telur eignin :
Rúmgóða forstofu með innbyggðum fataskáp. Harðparket á gólfi.
Eldhús og stofa eru í sama rými og mynda bjart og rúmgott alrými með góðri lofthæð og stórum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn. Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð, dökk að lit með hvítum efri skápum og innbyggðri LED-lýsingu undir efri skápum. Ljós borðplata setur fallegan svip á eldhúsið.
Heimilistæki eru frá AEG, þar á meðal innbyggður ísskápur með frysti, uppþvottavél og spanhelluborð í eldhúseyju.
Stofan er björt og notaleg og þaðan er útgengt á sólpall og sérflöt við pallinn.
Rúmgott hjónaherbergi með harðparketi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi 2 með harðparketi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 með harðparketi og fataskáp.
Þvottahús er með góðri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í þægilegri vinnuhæð. Flísar á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott og fallegt, flísalagt í hólf og gólf. Góð innrétting með vaski og speglaskápum, handklæðaofn og opin sturta með innbyggðum blöndunartækjum. Upphengt salerni.
Sérgeymsla fylgir íbúðinni.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu.
Lóðin er fullfrágengin með grasi og gróðri, leiktækjum og hellulögðum/steyptum stéttum. Malbikað bílaplan er með 27 bílastæðum og fylgir íbúðinni sérmerkt bílastæði þar sem gert er ráð fyrir hleðslustöð.
Eignin Móstekkur 8 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-4327, birt stærð 127.2 fm.

Nánari upplýsingar veitir Sverrir Sigurjónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6624422, tölvupóstur ss@betristofan.is.

Staðsetning

Móstekkur 8, 800 Selfoss

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin