Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 108 Reykjavík

Orkureiturinn D1 702

228.000.000 kr.

1.378 þ.kr./m²

13 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
165,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Byggingarár
2025
Hæð
7. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
111.650.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn s. 7751515 á Betri Stofunni og Safír byggingar ehf kynna með stolti Orkureitinn. Glæsilegar nýjar íbúðir í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna. Rut Kára stýrir innanhússhönnun og er sérstök áhersla lögð á gott flæði dagsbirtu. Svansvottaðar íbúðir.

Heimasíða Orkureitsins

Orkureitur - Suðurlandsbraut 40, íbúð 702 er 3ja-4ra herbergja 165,5 fm  með sérmerktu stæði B026. Íbúðin er við Suðurlandsbraut og snýr í útsýnisátt til norðurs og einnig til suðurs inn í fallegan og skjólgóðan inngarð.

Flæði íbúðar:
Komið inní anddyri með góðum fataskápum.
Baðherbergi með sturtu.  
Hjónasvíta með mjög góðum fataskápum og rúmgóðu sér baðherbergi með stórum glugga og baðkari.
Herbergi II er 11,6 fm að innra máli með góðum fataskáp.
Sjónvarpshol/herbergi III snýr í suður og er þaðan útgengið á góðar suðursvalir er snúa inn í skjólgóðan inngarð.
Eldhúsið er með stein á borðplötum. Glæsileg innrétting frá GKS með eyju. Safír Premium /útg 6.
Alrými tegir saman eldhús, borðstofu og stofu og er með gólfsíðum gluggum til norðurs og fallegu útsýni.
Sérþvottahús íbúðar er rúmgott með góðri innréttingu.
Gólfsíðir gluggar og gólfhit ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði. 
Sérgeymsla íbúðar í kjallara er 23,5 fm. að auki er lítil geymsla innan íbúðar.
Innréttingaþema er Safír Premium. Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora. 

Nánar um Orkureitinn: 
Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.

Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027. 

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar: 
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir , í síma 899-5533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.
Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021 - tölvupóstur: hreidar@betristofan.is

 

Staðsetning

Orkureiturinn D1 702, 108 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin