Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 104 Reykjavík

Kænuvogur 57

89.500.000 kr.

881 þ.kr./m²

23 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með sérinngangi
Stærð
101,6 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
2
Byggingarár
1963
Hæð
3. hæð
Inngangur
Tveir inngangar
Fasteignamat
75.700.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
76.050.000 kr.
Brunabótamat
47.250.000 kr.

Um eignina

Hreiðar Levý lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna fallega og bjarta 2 herbergja útsýnisíbúð annarri hæð með sérinngangi ásamt 32,3 fm stúdíóíbúð/vinnustofa með sér inngangi á jarðhæð. Þriggja metra lofthæð er í báðum íbúðum. Loft tekin niður og innfelld lýsing að hluta. Gólfhiti með Danfoss stýringu í báðum íbúðum. Sérmerkt bílastæði á bílaplani fylgir eigninni. Glæstilegt útsýni innrammað út um fallegan og stóran stofuglugga út á Elliðaá, Geirsnef og út á bláfjöll úr 2ja herbergja íbúðinni. Sérafnotaflötur til suðurs (7,1 m²) er fyrir framan íbúð á svalagangi. Möguleiki á að opna niður í vinnustofu / stúdíóíbúð með hringstiga og sameina þannig í eina heild ef hentar. Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík í hverfi sem er í mikilli uppbyggingu. Stutt í fjölbreytta þjónustu og verslun ásamt einstökum útivistarsvæðum.

Húsið var endurgert á árunum 2008-2012, m.a. nýtt þak, nýjir gluggar, nýtt rafmagn og gólfhiti settur í íbúðina.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Aðalíbúð:
Forstofa: Gengið inn í forstofu um sérinngang af opnum stigapalli. Opin með fatahengi. 
Svefnherbergi: Rúmgott og flotað gólf.
Alrými: Samliggjandi eldhús og stofa. Fallegt rými með 3 metra lofthæð ásamt einstaklega fallegu útsýni úr stóum og fallegum stofugluggum.
Eldhús: Opið við stofu. Eikarinnrétting með eyju. Innbyggður ofn og helluborð í eyju. 
Stofa: Opið við eldhús. Björt og með einstöku útsýni út um stofugluggana.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og á vegg inní sturtu. Upphengt salerni. Innrétting með vask, hillum og skáp. 
Þvottahús / Geymsla: Rúmgott þvottahús/geymsla með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Innbyggðar hillur. Lagnagrindin fyrir gólfhitann.

Vinnustofa / Stúdíóíbúð:
Alrými: Gengið inn um sérinngangur á neðri hæð inn í vinnustofuna / stúdíóíbúðina. Komið er inn í rúmgott alrými með eldhúsinnréttingu og fataskáp. Parket á gólfi að stærstum hluta í alrými, flísar við eldhúsinnréttingu.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og á veggjum yfir klósetti og í sturtu. Sturtuklefi, hvít innrétting og upphengt salerni. Yfir baðhebergi er geymsluloft með rennihurðum. Nýlega var sett upp loftræstikerfi úr baðherbergi.

Einstök eign í nafla Reykjavíkur. Góð 2ja herbergja íbúð með aukinni loftæð, sérafnotafleti til suðurs, sérmerktu bílastæði og með einstöku útsýni út á Elliðaá, Geirsnef og Bláfjöllin auk aukaíbúðar sem er skráð sem vinnustofu á jarðhæð. Mjög góð staðsetning við Elliðavoginn, miðsvæðis í Reykjavík.

Nánari upplýsingar gefur Hreiðar Levý lögg. fasteignali í síma 661-6021, hreidar@betristofan.is

Staðsetning

Kænuvogur 57, 104 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin