Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 101 Reykjavík

Reykjastræti 7 213

159.000.000 kr.

1.228 þ.kr./m²

34 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
129,5 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2019
Hæð
2. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
154.650.000 kr.
Brunabótamat
88.680.000 kr.
Laus
Strax

Um eignina

Jason Kristinn fasteignasali sími 775 1515 og Betri Stofan kynna: 129,5 fm lúxusíbúð á 2. hæð við Austurhöfn, sem er í hjarta miðbæjarins í Reykjavíkurhöfn.

Íbúðin er laus strax við kaupsamning. Sýnum samdægurs. 
Sérmerkt stæði í bílakjallara með grunntengingu fyrir hleðslustöð. 
Rúmgóð sérgeymsla er í kjallara.
Einstök íbúð á einstökum stað í næsta nágrenni við Hörpu. Húsgögn geta fylgt með.
Íbúðin er á 2. hæð og nýtur útsýnis til miðbæjar og er með sérafnotarétt inní fallegan inngarð Austurhafnar, sem er lokaður garður.

Fyrir framan íbúð er lokað rými sem nýtist sem aukaforstofa og er ca 4 fm en er ekki í skráðum fermetrum.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með miklu skápaplássi þaðan er gengið inn í alrými með stóru eldhúsi með eldunareyju.
Útgengt er á svalir sem snúa annars vegar í austur með útsýni til Hörpu og til vesturs er sérafnotaréttur inní inngarð með sól. 
Baðherbergi með sturtu, baðkari og rými fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergið er mjög rúmgott og er með fataherbergi fyrir innan rennihurð, hægt er að breyta hluta af stofu í svefnherbergi nr. 2
Sérsmíðaðar innréttingar með þykkari spón frá ítalska fyrirtækinu Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og fataskápum.
Kvarts steinborðplötur við eldhúsvask, en borð yfir eldhúseyju er klætt marmaraflísum.
Afar vönduð tæki í eldhúsi frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, frystir, vaskur og blöndunartæki.
Snjallheimiliskerfi til að stýra lýsingu heimilisins, hitastigi, gluggatjöldum, sjónvarpi o.fl.
Íbúðin hefur aðgang að sérmerktu bílstæði í bílageymslu. Hægt er að keyra í kjallarann frá höfninni einnig er hægt að keyra í bílageymslu úr innkeyrslu Hörpu og einnig frá Hafnartorgi.

Íbúðin er vel staðsett í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu.

Allar nánari upplýsingar gefur: Jason Kristinn Ólafsson s. 775 1515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali 

Staðsetning

Reykjastræti 7 213, 101 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin