Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Raðhús· 190 Vogar

Staðarborg 15D

61.000.000 kr.

738 þ.kr./m²

11 myndir

Tegund
Raðhús
Stærð
82,7 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
7.250.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
7.560.000 kr.

Um eignina

Þórhallur Biering fasteignasali sími 896-8232 og Betri Stofan fasteignasala kynna: Fimm glæsileg fullbúin 4ra herbergja raðhús á einni hæð í Vogunum, Staðarborg 1 A - E.
Staðarborg 15D er millihús. 
Húsið (er staðsett í Grænubyggð sem er fjölskylduvænt hverfi í mikilli uppbyggingu. Frekari upplýsingar um hverfið má finna hér http://www.graenabyggd.is

Eignin er skráð 82,7 fm. og afhendist fullbúið með öllum gólfefnum. Vestur verönd út af stofu með skjólveggjum. Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu/eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.

Afhending eignanna er í Nóvember 2026.

Gólfsíðir gluggar í alrými.
Danfoss stýrikerfi fyrir gólfhita.
Aukin lofthæð.
Aðgangur er að hleðslustöð með hverri íbúð frá fyrirtækinu Amper ( amper.is).
Lagnaleið fyrir heitan pott.
Tvö bílastæði eru fyrir framan hvert hús.

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfum og rúmgóðum skápum.
Stofa og borðstofa er í opnu alrými með eldhúsi, rúmgóð stofa með útgengi á sólpall, lofthæð innan eignarinnar á hæsta punkt eru um fjórir metrar og setur það mikinn svip á stofuna.
Eldhús er opið við stofu. Eldhúsinnrétting er frá HTH og tækin frá AEG. Span helluborð með viftu, ofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.
Svefnherbergi eru þrjú, öll hafa þau parket á gólfum og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með 60x60 flísum, upphengt salerni, sturtuklefi og innrétting við vask með ljúflokun á skúffum.
Geymsla er einnig fyrir ofan baðherbergi, aðgengi frá einu svefnherbergjanna og er möguleiki að nota rýmið sem svefnloft.

Lóð er tyrfð, verönd við bakhlið eru úr timbri (lerki) og er skjólveggur á milli húsa. Stéttir og bílastæði við aðkomuhlið íbúða eru hellulögn og snjóbræðsla er í gangstéttum. 

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af væntanlegu brunabótamati.

Allar nánari upplýsingar gefur:
Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða thorhallur@betristofan.is 

Staðsetning

Staðarborg 15D, 190 Vogar

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin