Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 101 Reykjavík

Austurhöfn 409

105.000.000 kr.

1.298 þ.kr./m²

42 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
80,9 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2019
Hæð
4. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
116.350.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
115.300.000 kr.
Brunabótamat
63.050.000 kr.
Laus
Strax

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 775-1515 , jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna til sölu eða leigu glæsilega íbúð sem er rúmlega 80 fm björt 2ja herbergja íbúð í Austurhöfn með fallegu eikarparketi. Stæði í bílageymslu fylgir ekki með íbúðinni en hægt er að leigja stæði í Hafnartorgi. Í stofu eru stórir gluggar til suðurs og vesturs inn í fallegan lokaðan garð. Hægt er að fá eign með húsgögnum gegn aukagjaldi.

Íbúðinni fylgja glæsilegar 12 fm suður svalir. Möguleiki er að láta gera svalalokun eins og sjá má á hæðinni fyrir neðan.
Fataskápur er í forstofu, en þaðan er gengið beint inn í bjarta og stóra stofu. Gólfhiti er í íbúðinni.
Stofan er með stórum gluggum og fallegu parketi.
Úr stofunni er gengt út á rúmgóðar svalir sem snúa til suðurs. 
Eldhúsið er með sérsmíðuðum innréttingum frá Gili sem er ítalskt merki. Miele tæki og Liebherr ísskápur og frystir. Spanhelluborð. Innbyggð Miele uppþvottavél af vönduðustu gerð fylgir.
Sér þvottahús er innan íbúðarinnar með vönduðum tækjum og innréttingum. Tækjaskápur og stór rafmagnstafla.
Baðherbergið er með innfelldum blöndunartækjum af vandaðri gerð. Steinn á borðplötu. Sturta og sturtugler. Falleg lýsing. Vönduð innrétting.
Svefnherbergið er rúmgott með mjög góðum fataskápum. 
Íbúðin er skráð 74,3 fm og því til viðbótar er 5,6 fm geymsla i kjallara.
Íbúðin getur selst með eða án húsgagna. Með húsgögnum eykst verðmiðinn um 4 milljónir.
Snjallheimiliskerfi er í íbúðinni, sem gerir íbúum kleift a stýra lýsingu, hitastigi, ofl.

Skjólgóður garður er rammaður inn af byggingunni og er hann eingöngu aðgengilegur fyrir íbúa hússins.
Sérgeymsla er í kjallara og þar er lokaður bílakjallari með merktu stæði í bílakjallara.

Austurhöfn er glæsileg bygging með metnaðarfullri hönnun á einstökum reit við Reykjavíkurhöfn. Í engu er til sparað, hvort sem litið er til innréttinga, tækja, þjónustu eða frágangs innan sem utan.

Allar nánari upplýsingar gefa: Jason Kristinn Ólafsson, jason@betristofan.is í síma 7751515 - löggiltur fasteignasali

Staðsetning

Austurhöfn 409, 101 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin