Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Raðhús· 800 Selfoss

Bergvík 17

68.900.000 kr.

686 þ.kr./m²

39 myndir

Tegund
Raðhús á einni hæð
Stærð
100,4 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2023
Hæð
1. hæð
Inngangur
Tveir inngangar
Fasteignamat
71.850.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
70.550.000 kr.
Brunabótamat
54.850.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Bergvík 17, 800 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-03, fastanúmer 252-5357 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Um er að ræða  4ra herbergja timburraðhús, lengjan er klædd að utan með rauðu bárujárni og Stac Bond klæðningu í bland, bárujárn á þaki. Húsið er byggt 2023.
Að innan telur eignin :
Forstofu með flísum á gólfi og góðum forstofuskáp.
Eldhús með fallegri viðarinnréttingu frá IKEA, led lýsing undir efri skápum í eldhúsi og ljósri borðplötu. Innréttingin er með innbyggðum ísskáp með frysti, bakarofni í vinnuhæð, innbyggðri uppþvottavél og spanhelluborði í eyju/tanga sem hægt er að sitja við. Háfur fyrir ofan helluborð.
Stofa er í alrými með eldhúsi og er hurð út í suð-vestur garð.
Baðherbergi er með innréttingu með vaski og speglaskáp fyrir ofan, upphengdu wc, handklæðaofni, háum skáp fyrir aftan hurð og walk in sturtu með sturtugleri. Flísar á gólfi og að hluta til á veggjum.
Aðalsvefnherbergi er rúmgott með góðum fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með góðum fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með góðum fataskáp.
Þvottahús er með fallegri innréttingu með miklu skápaplássi, vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Gólfefni eru flísar á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi og harðparketi á öðrum rýmum.
Hiti í gólfum ásamt stýringum
Mulningur í bílaplani, steypt sorptunnuskýli og þökulögð lóð.

Eignin Bergvík 17 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-5357, birt stærð 100.4 fm.

Nánari upplýsingar veitir Sverrir Sigurjónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6624422, tölvupóstur ss@betristofan.is.

Staðsetning

Bergvík 17, 800 Selfoss

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin