Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 108 Reykjavík

Álftamýri 44

64.900.000 kr.

882 þ.kr./m²

38 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
Stærð
73,6 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1963
Hæð
3. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamat
58.850.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
58.800.000 kr.
Brunabótamat
39.900.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, jason@betristofan.is, sími 7751515 og Betri Stofan kynna fallega, mikið endurnýjaða og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á 3. hæð í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi við Álftamýri 44 í Reykjavík. Íbúðin er alls 73.6 fermetrar að stærð og þar af er geymsla 5,7 fermetrar. Rúmgóð stofa með gluggum til suðurs. Útgengi á svalir til suðvestur sem snúa inn í bakgarð hússins. 

Íbúðin hefur verið endurnýjuð á undanförnum árum, m.a. baðherbergi, eldhús, rafmagn

Um er að ræða frábæra staðsetningu við Álftamýri 44, miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu. Leikskóli, grunnskóli og íþróttasvæði í göngufjarlægð. Stutt í allar helstu stofnæðar höfuðborgarsvæðisins. Núverandi Víkingshverfi sem var áður Framhverfi. Göngufæri í Laugardalinn. 

Nánari lýsing:
Forstofa/hol: Með harðparketi á gólfi og fatahengi.
Stofa: Með harðparketi á gólfi og gluggum til suðurs. Útgengi á svalir frá stofu með útsýni til Bláfjalla og víðar.
Svalir: Snúa til suðurs inn í bakgarð hússins. Nýir gluggar og svalahurð.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri hvítri eldhúsinnréttingu. Siemens eldavél, innfelldur ísskápur og uppþvottavél, borðkrókur og gluggi til norðurs.
Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfi, rúmgóðum fataskápum.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum, sturta, upphengt salerni og innrétting við vask. Handklæðaofn og gluggi til norðurs.
Geymsla: Er 5,7 fermetrar og er staðsett á jarðhæð hússins. 

Þvottaherbergi: Er sameiginlegt á jarðhæð hússins. Sér tenglar fyrir hverja íbúð fyrir þvottavél og þurrkara. Málað gólf, vinnuborð og gluggi til vesturs.
Hjóla- og vagnageymsla: Með máluðu gólfi.

Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Endurnýjað þak á árunum 2006-2007.
Árið 2014 voru skólplagnir og brunnar endurnýjaðar innan lóðar og drenlagnir lagðar.
2104, sama ár voru stéttar endurnýjaðar með snjóbræðslu og innkeyrsla og bílaplön malbikuð.
Á árunum 2017-2018 var unnið við múrviðgerðir og málun á húsinu ásamt því að skipta var um alla glugga í blokkinni og svalahurðir.
Þá er auk þess búið að endurnýja dyrasímakerfi hússins, mála.
Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu og malbikuð sameiginleg bílastæði. 

Allar nánari upplýsingar gefur:
Jason Kristinn Ólafsson, s. 775-1515 - jason@betristofan.is - löggiltur fasteignasali


 

Staðsetning

Álftamýri 44, 108 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin