Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Sumarhús· 311 Borgarnes

Indriðastaðahlíð 162

Tilboð

41 myndir

Tegund
Sumarhús
Stærð
266,5 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
2011
Hæð
1. hæð
Inngangur
Fleiri en einn
Fasteignamat
72.950.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
78.550.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, sími 844-9591 - thorir@betristofan.is, kynna:

Glæsilegt heilsárshús með stórri eignarlóð, miklu útsýni, bílskúr og stórri verönd allt um kring. Húsið stendur mjög hátt í landi Indriðastaða, í lokuðu hverfi með aðgangansstýringu. Góð aðkoma er að húsinu sem stendur á 6.237 fm eignarlóð fremst í Skorradalnum. Gólfhiti og heitur pottur á verönd. 

Sjá hér myndband af eigninni

***Skipti á ódýrari eign koma til greina***

 
Indriðastaðahlíð 162 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign merkt: 01-01, birt stærð 266,5 fm og skiptist þannig að neðri hæðin er 26,6 fm ásamt 77,7 fm bílskúr, efri hæðin er skráð 162,2 fm eða samtals: 266,5 fm. 

Nánari lýsing eignar: Neðri hæðin
skiptist í bílskúr, opið rými, stórt þvottahús og innaf bílskúrnum er gluggalaust rými. Bílskúrinn er með sjálfvirkum hurðaopnara. Expoxy á gólfum neðri hæðar. Við þvottahús er stigi upp á efri hæðina. Aðalinngangur er sunnanmegin við húsið. Komið er inn í góða forstofu. Frá forstofu tekur við opið rými. Björt og rúmgóð stofa með stórglæsilegu óhindruðu útsýni út á stórbrotna náttúrufegurð. Eldhúsið er með snyrtilegri innréttingu með góðu geymslu- og vinnuplássi, eldunareyja. Rúmgóður borðkrókur með útgangi út timburpallinn / svalirnar með glæsilegu útsýni. Innaf borðkróknum er mjög rúmgott svefnherbergi og innaf því er baðherbergi með upphengdu salerni, sturtu og handklæðaofni. Frá baðherbergi er unnt að ganga út á timburpalinn / svalirnar og þaðan í heitan pott. Setustofa / sjónvarpsstofa með útgangi út á timburpallinn / svalirnar. Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, Walk-in sturta, handklæðaofn og upphengt salerni. Frá baðherbergi er unnt að ganga út á timburpall / svalirnar. Þrjú svefnherbergi til viðbótar eru í húsinu og er fataskápur í einu herbergjanna. Gólfefni: parket og flísar á efri hæð, epoxý á neðri hæð.

Afar glæsilegt sumar- / heilsárshús á vinsælum, fallegum og friðsælum stað fremst í Skorradalnum. Stutt í alla helstu verslun og þjónustu í Borgarnesi. 

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.

Staðsetning

Indriðastaðahlíð 162, 311 Borgarnes

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin