Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Einbýli· 580 Siglufjörður

Norðurgata 12

55.000.000 kr.

319 þ.kr./m²

18 myndir

Tegund
Einbýlishús á þremur hæðum
Stærð
172,6 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
1915
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
33.700.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
37.400.000 kr.
Brunabótamat
66.200.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Norðurgata 12, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0796 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Norðurgata 12 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0796, birt stærð 172.6 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.


Um er að ræða mikið endurnýjað þriggja hæða einbýlishús með stórum palli staðsett í miðbæ Siglufjarðar. Eignin samanatendur af forstofu, eldhúsi, stofu, fjórum svefnherbergjum, baðherbergi, gestasalerni og kjallara. Gengið er inn í mjög rúmgóða forstofu á miðhæð eignarinnar. Miðhæð samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og gestasalerni. Útgangur er út á pall úr svefnherbergi og baðherbergi. Efri hæð samanstendur af þremur svefnherbergjum og geymslu. Útgangur er út á efri pall úr einu svefnherbergjanna. Kjallari er steyptur og er hólfaður niður í rými. Útgangur er út úr kjallara á bak við eignina. Búið er að endurnýja glugga og þak eignarinnar. 

Forstofa: er mjög rúmgóð með góðu skápaplássi og parket á gólfi. 
Eldhús: er með góðu skápaplássi, borðkrók og parket á gólfi. 
Stofa: er með góðu gluggaplássi og parket á gólfi. 
Baðherbergi: er með rakaþolnum plötum á gólfi, frístandandi sturtuklefa, salerni, vask og innréttingu. Útgangur er út á pall og heitan pott. Þvottaaðstaða er inn á baðherbergi. Einnig er gestasalerni á miðhæð með salerni og vask. 
Svefnherbergi: eru í heildina fjögur ef frá er talið svefnrými í kjallara. 
Pallur: er sunnan megin við eignina með heitum potti, skjólveggjum og geymsla er undir palli. 
Garður: er bakvið eignina og er að hluta til graslagður. 

Betri Stofan - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali í Fjallabyggð. 
 

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin