Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 108 Reykjavík

Orkureiturinn D1 102

99.900.000 kr.

1.002 þ.kr./m²

29 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
99,7 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2025
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
75.550.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn s. 7751515 á Betri Stofunni og Safír byggingar ehf kynna með stolti Orkureitinn. Glæsilegar nýjar íbúðir í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna. Rut Kára stýrir innanhússhönnun og er sérstök áhersla lögð á gott flæði dagsbirtu. Svansvottaðar íbúðir.

Heimasíða Orkureitsins

Orkureitur - Suðurlandsbraut 40, íbúð 102 er 3ja-4ra herbergja 126,5 fm með sérmerktu stæði B040. Íbúðin er á horni Suðurlandsbrautar og Grensásvegar og er á 5. hæðinni með fallegu útsýni.

Flæði íbúðar:
Komið inní anddyri með mjög rúmgóðum fataskápum.
Baðherbergi með sturtu. Rennihurð úr baðherbergi í þvottarými. 
Hjónasvíta með sér baðherbergi og fataskápum sem eru 3 metrar að breidd.
Svefnherbergi II er 8,6 fm að innra máli og er með einföldum fataskáp.
Eldhúsið er með stein á borðplötum. Glæsileg innrétting frá GKS með eyju. Safír Harmónía /útg 4.
Alrýmið er með gluggum að mestu til norðurs og frábæru útsýni, að auki eru gluggar til austurs og þaðan er hægt að ganga út á svalir sem eru rúmlega 7 fm að stærð.  Auðveldlega er hægt að útbúa 3ja svefnherbergið á kostnað sjónvarpshols sem er í enda stofu. Gólfsíðir gluggar og gólfhit ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði. 
Sérgeymsla er 10,2 fm.
Innréttingaþema er Safír Harmonía. Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora. 

Nánar um Orkureitinn: 
Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.

Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027. 

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar: 
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir , í síma 899-5533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.
Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021 - tölvupóstur: hreidar@betristofan.is

 

Staðsetning

Orkureiturinn D1 102, 108 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin