Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 102 Reykjavík

Haukahlíð 1

77.900.000 kr.

1.040 þ.kr./m²

25 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
74,9 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2020
Hæð
4. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
76.350.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
75.750.000 kr.
Brunabótamat
54.130.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515  og Betri Stofan fasteignasala kynna: 3ja herbergja íbúð á fjórðu hæð með stæði í bílageymslu, í lyftuhúsi með innfeldum ísskáp og uppþvottavél. Íbúðin skiptist í forstofu, baðherbergi, svefnherbergi, aðalrými með eldhúsi, borðstofu, stofu og útgengi út á suðaustur-svalir.

Nánari lýsing: 
Forstofa með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Eldhús með fallegri ljósri innréttingu með efri og neðri skápum, bakaraofn í vinnuhæð. Innbyggður ísskápur með frystihólfi og uppþvottavél fylgir.
Stofan er björt og opin inn í eldhús. Harðparket á gólfi. Gengið er út á svalir frá stofu sem snúa inn í garðinn.
Svefnherbergin er tvö með fataskápum og harðparketi á gólfi. 
Baðherbergið er með innréttingu undir og yfir handlaug, sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og flísum á gólfi og veggjum að mestu. Inn á baðherbergi er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Hiti er í gólfi,
Rúmgóð geymsla er í sameign 12,5 fm

Bílastæði N40 í lokuðu bílastæðahúsi.
Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg í kjallara.
 
Miðbærinn er í göngufæri og því þægilegt að fá sér stuttan göngutúr á veitingahús, söfn, tónleika, sundhöllina eða gefa öndunum á Tjörninni. Glæsileg íþróttaaðstaða Vals er við hliðina á nýju byggðinni á Hlíðarenda, frábært fyrir börn og unglinga sem koma til með að búa í húsinu. Mjölnir er svo með aðstöðu í Öskjuhlíðinni þar sem áður var keiluhöll.

Allar nánari upplýsingar gefur: Jason Kristinn Ólafsson s. 775 1515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali

Staðsetning

Haukahlíð 1, 102 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin