Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Hæð· 101 Reykjavík

Ásvallagata 26

149.000.000 kr.

1.006 þ.kr./m²

40 myndir

Tegund
Hæð í þríbýlishúsi
Stærð
148,1 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1949
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
109.750.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
109.250.000 kr.
Brunabótamat
68.800.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna: Tæplega 150 fermetra sérhæð, Ásvallagata 26. Glæsileg og mikið endurnýjuð sérhæð í Vesturbænum með sérinngangi í virðulegu húsi teiknuðu af Halldóri H. Jónssyni. Húsið stendur við sögufræga og eftirsótta íbúðagötu í 101 Reykjavík. Húsið sjálft hefur fengið gott viðhald að utan, var endursteinað og skartar koparrennum. Sérbílastæði er á lóð og kjallararými býður upp á skemmtilega möguleika, m.a. á útleigu. Þrjár íbúðir eru í húsinu og sérhæði og kjallaraíbúð eru í eigu sömu aðila.  Endurnýjun: Eldhús endurnýjað, nýlegt baðherbergi og þvottahús, nýlegt parket og teppi, ásamt framkvæmdum að utan. Staðsetning: Einn vinsælasti og virðulegasti staðurinn í Vesturbænum – í göngufæri við miðbæinn, skóla og alla helstu þjónustu.

Lýsing:
Anddyri: Komið er inn um sérinngang í flísalagt anddyri. Íbúðin er á miðhæð hússins og gengið beint inn frá tröppum.
Hol & Stofur: Rúmgott hol tengir saman alrými eignarinnar. Stofa og borðstofa eru samliggjandi, mjög bjartar og glæsilegar með mikilli lofthæð, stórum frönskum gluggum, nýlegu parketi og vönduðum arni sem setur hlýlegan svip á rýmið. Góð lofthæð.
Eldhús: Endurnýjað árið 2015, opið og tengist borðstofunni vel. Vandaðar innréttingar og tæki.
Svefnherbergi: Aðalsvefnherbergi: Mjög rúmgott með nýlegu teppi á gólfi. Án fataskáps en pláss fyrir þá samt sem áður.
Aukaherbergi / Vinnuherbergi: Staðsett á milli eldhúss og herbergjagangs. Nýtist frábærlega sem skrifstofa, vinnustofa eða barnherbergi (teppi á gólfi).
Forstofuherbergi: Rými sem býður upp á fjölbreytta nýtingu sem svefnherbergi eða aukastofa/sjónvarpsherbergi.
Baðherbergi: Rúmgott og nýlega endurnýjað á glæsilegan hátt. Var áður baðherbergi og svefnherbergi.
Gólfhiti er á gangi, baðherbergi og herbergjum.

Kjallari (Sérrými): Í kjallara eru skráðir aukalega 26,6 fm sem skiptast í sérþvottahús, snyrtingu, geymslur og aukaherbergi. Rýmið í kjallaranum býður upp á frábæra nýtingarmöguleika, t.d. sem vinnustofa, unglingaaðstaða eða útleigueining.

Húsið og lóðin: Húsið er virðulegt og hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Að utan hefur það verið endursteinað og nýjar koparrennur.

Staðsetning: Staðsetningin gerist varla betri í Vesturbænum – stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, sundlaug og kaffihús, auk þess sem örstutt er að rölta inn í miðbæ Reykjavíkur.

Allar nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.

Staðsetning

Ásvallagata 26, 101 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin