Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Einbýli· 625 Ólafsfjörður

Aðalgata 18

35.000.000 kr.

321 þ.kr./m²

15 myndir

Tegund
Einbýlishús á þremur hæðum
Stærð
109 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
0
Byggingarár
1928
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamat
26.650.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
27.350.000 kr.
Brunabótamat
53.590.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Aðalgata 18, 625 Ólafsfjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 215-3850 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Aðalgata 18 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 215-3850, birt stærð 109.0 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@betristofan.is


Um er að ræða einbýlishús í miðbæ Ólafsfjarðar á þremur hæðum með 12,5m2 upphituðum geymsluskúr. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, borðstofu, stofu, búri/geymslu, fjórum svefnherbergjum, baðherbergi og geymsluskúr.
Eignin hefur talsvert verið endurnýjuð en búið er að:
-skipta um alla glugga með sérsmíðuðum gluggum og hurðum.
-Þak var yfirfarið og skipt um pappa og járn. 
-Ný einangrun og járn sett á hús. 
-Steintröppur rifnar niður og nýjar timburtröppur byggðar með verönd.Rafmagnshitamotta var sett í steyptan hluta og hitablásari í timbur hluta. 
-Drenað var var eigninni. 
-Nýtt inntak fyrir bæði heitt og kalt vatn.
-ljósleiðari tekin inn í hús.   

Gengið er inn á miðhæð eignarinnar sem samanstendur af forstofu, eldhúsi, borðstofu, búri og baðherbergi. Gólf er málað. 
Eldhús: er með hvítum innréttingum og góðu borðsplássi. 
Borðstofa: er rúmgóð með góðu gluggaplássi. 
Búr/geymsla: er með ágætis hilluplássi. 
Baðherbergi: er með baðkari, salerni, vask, innréttingu, skáp og gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi. 

Timburstigi liggur upp á efri hæð sem samanstendur af stofu og svefnherbergi. Efri hæð er að hluta til undir súð. 
Stofa: er mjög rúmgóð með góðu gluggaplássi og útsýni yfir miðbæinn. Parket er á gólfi
Herbergi: er rúmgott að hluta til undir súð. Parket er á gólfi. 

Timburstigi liggur niður í kjallara frá miðhæð sem samanstendur af þremur svefnherbergjum og útgang út í garð. 
Svefnherbergi: eru misstór en öll með parket á gólfi. Áður var þvottahús í einu herbergi og því frárennsli undir gólfefni. 
Garður: er grasilagður með stétt fyrir utan inngang að geymsluskúr. 
Geymsluskúr: er vatnsheldur og upphitaður með steyptu gólfi. 

Staðsetning

Aðalgata 18, 625 Ólafsfjörður

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin